Halli, Lára og Helena

fimmtudagur, september 09, 2004

Kallinn kominn heim!!!!

Jæja, Halli kom heim frá Slóvakíu í gær. Þetta var fyrsta utanlandsferð hans frá því Helena fæddist. Þetta var nú reyndar bara stutt ferð. Fór út síðasta föstudag og átti reyndar að koma heim þriðjudagskvöldið og við Helena vorum orðnar mjög spenntar að hitta hann þá, en viti menn, kallinn missti af flugvélinni í Vín......úps.....svo hann komst þá ekki heim fyrr en næsta dag. En nú er hann kominn og vorum við mæðgur mjög glaðar að fá hann aftur heim. Heyrðu, já svo eru það bara göngur og réttir sem eru framundan næstu tvær helgar. Það verður spennandi að sjá hvernig Helenu líst á allt þetta fé í sveitinni. En svo er nefnilega líka Sauðamessa í Borgarnesi á laugardaginn þar sem sauðfé verður rekið endilangt í gegnum Borgarnes en það er í tilefni fjölskylduhátíðar helgaðri sauðkindinni og lambakjötsáti. Hátíðinni er ætlað að sýna sauðkindinni þá virðingu sem hún á skilið. Þetta verður mjög fróðlegt að sjá.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Nohh, bara ættarmót hjá þér Lára? ;)
En velkominn heim annars Halli

- Andri móðurbróðir

9. september 2004 kl. 16:35

 

Skrifa ummæli

<< Home