3ja mánaða skoðun
Mikið rosalega líður tíminn hratt. Helena verður 3ja mánaða á morgun, en hún fór í 3ja mánaða skoðun í gær, þar sem hún var mæld, viktuð og svo fékk hún sína fyrstu sprautu. En nú er hún orðin 5.570 g og 62 cm og höfuðmálið var 40,7. Hún var annars voðalega dugleg, grét aðeins en það var nú aðalega út af því að þurfa að spriklast þarna berrössuð og svo var nú ekkert svo voðalega hlýtt þarna inni, en smá knús frá mömmu og pabba og þá var þetta allt í sómanum. Svo spurði læknirinn okkur hvort við hefðum einhverjar spurningar......hmmm....nei ég held bara ekki. Þetta gengur allt svo vel, engin vandamál....allt í góðu enn sem komið er :-)

3 Comments:
Loksins kominn bloggur, flottur hjá þér ;)
Já, tíminn er sko fljótur að líða og þau afskaplega fljót að stækka þessi litlu kríli. Gott að gengur svona vel, á eftir að fylgjast með ykkur og um að gera að vera duglegur að setja inn myndir.
Kveðja frá DK
Addý og co.
16. september 2004 kl. 17:49
Þriggja mánaða krílið - tíminn líður ótrúlega hratt! Og við erum bara einu sinni búin að koma í heimsókn ussusssuss...
Til hamingju með bloggið - frábært að lesa aðeins um lífið í Teigabyggð (styttir stundir á leiðinlegum vinnudögum)
Góða helgi,
Lísa og þau hin biðja örugglega að heilsa :o)
17. september 2004 kl. 10:01
Halló stórfjölskylda!
Gott að heyra að allt gengur vel. Já, tíminn líður og næst fáum við að heyra um 3og1/2 árs skoðunina. Hún er dugleg að stækka og ætlar auðvitað ekki að vera nein písl. Með kveðju, Milla og strákarnir.
18. september 2004 kl. 10:55
Skrifa ummæli
<< Home