Halli, Lára og Helena

mánudagur, janúar 24, 2005

Sveitasæla

Við skelltum okkur í sveitasæluna til tengdó um helgina. Það var mjög næs. Þetta var sko alveg action helgi. Byrjuðum á að fara á gönguskíði á laugardaginn. Þetta endaði alveg í 2ja tíma ferð. Skíðuðum eftir Hítaránni, en hún var alveg frosin og snjór yfir, svo þetta var hin fínasta braut. Ég verð nú að segja að ég var nú nokkuð stollt af mér hvað ég náði að halda í Halla. Það er greinilegt að líkamsræktin sé eitthvað farin að skila sér....jibbí! Helena svaf bara sínu værasta á meðan úti í vagninum sínum og amman hlustaði eftir henni. Þegar hún vaknaði var svo farið með skvísuna í fjárhúsin og heilsað uppá rollur og hrúta. Henni leist nú bara vel á þessi dýr og gaf einum hrútinum koss á kinn (sjá meðfylgjandi mynd). Hún er greinilega mikill dýravinur því hún elskar einnig kisuna í sveitinni og hundinn Týra. Fylgjist alveg grant með öllum hreyfingum þeirra! Meira að segja höldum við að kisa sé kellingafull, svo aldrei að vita að Helena fái lítinn ketling á heimilið.....ekki leiðinlegt! Að sjálfsögðu voru miklar kræsingar á boðstólnum hjá henni tengdamömmu, ekki að spyrja að því. En ég reyndi nú að passa mig AÐEINS, þar sem ég er nú í rosa átaki. Það gekk ágætlega, en leyfði mér þó kökusneið á laugardeginum eftir tveggja tíma puð og mikla brennslu á gönguskíðum. Ég átti það sko sannarlega skilið! Á sunnudeginum var svo aftur farið út að leika, að þessu sinni á vélsleðann hans Halla. Ég sat nú mest megnis fyrir aftan hann meðan hann gaf allt í botn og ég öskraði og skríkti. En svo fékk ég nú aðeins að taka í, svona bara á rólegheitaganginum, engan æsing sko. Svo var nú bara haldið heim á leið eftir pönnukökur a la tengdó. Vildum líka vera dáldið snemma á ferðinni, þar sem Halli þurfti að byrja að pakka. Hann fór til Valencia á Spáni í morgun. Kemur aftur á föstudaginn. Jæja, læt þetta duga í bili. Kveð að sinni. Lára

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þetta hefur verið aldeilis gaman hjá ykkur; alltaf gott að komast útfyrir borgarmörkin c",) Ég saknaði þín samt í Sushi veislunni á laugardaginn; hefði verið gaman að hafa þig með okkur; bara næst !
Knús í krús, Friðdóra Kr.

26. janúar 2005 kl. 18:15

 

Skrifa ummæli

<< Home