Á maður að fara að blogga eitthvað?
Það er bara komin pressa á mann.....ufff! Komin um mánuður síðan ég tjáði mig eitthvað síðast. Ok þá, ég skal þá blogga eitthvað. Annars vil ég nú taka það fram að ég er nú dugleg að setja inn nýjar myndir á myndavefinn (linkur hér til hægri), því þar er ég með diggan stuðningshóp af folder sem heitir Helena. Sem dæmi þá stofnaði ég þennan myndavef í byrjun september og nú þegar hef ég fengið yfir 1000 heimsóknir og eru þetta vanalega um 150 heimsóknir á viku. Þó duttu þessar heimsóknir niður í tvær vikur. Þá var Halli sko með myndavélina erlendis í vinnuferð, svo ekki var hægt að setja inn nýjar myndir af prinsessunni á því tímabili. En svo fréttist af heimkomu hans og að það væri byrjað að mynda aftur Helenu og loada inn á vefinn....og um leið rauk heimsóknin á síðuna aftur upp. En hvaða fjöldi fólks skyldi þetta eiginlega vera????? Nei, ég held þetta sé nefnilega engin rosalegur fjöldi heldur þá sérstaklega tveir einstaklingar sem eru mjög duglegir að fara inná og skoða myndir af Helenu og það OFT Á DAG! Hver er þetta eiginlega? Og, jú þetta er engin annar en amman og ömmusystirnn......alveg óðar! Þrefalt húrra fyrir þeirra áhuga á dóttir minni :-)

2 Comments:
That's more like it!! Go bloggari :0)
Auðvitað er maður duglegur að skoða prinsessuna þína Lára mín. En nú gengur þetta ekki lengur, við verðum að fara að hittast, mig er nú farið að langa að hitta þig og Helenu -in person- tí hí
29. október 2004 kl. 12:58
Halló, halló, halló.
Hvað er eiginlega í gangi hérna.
Gerðu það....., byrjaðu að blogga aftur. Please. Mér finnst við vera algerlega vanrækt í upplýsingaflæði um Helenu fögru. Allavegana, Einar og Eydís biðja að heilsa.
Kveðja Ragna
12. nóvember 2004 kl. 12:50
Skrifa ummæli
<< Home